09 apríl 2007

Besta myndin

Einn góðan veðurdag ákvað Guillermo del Toro að búa til mynd bara handa mér. Hann bretti upp ermarnar, sagði: "jæja, nú ætla ég að búa til mynd handa henni Dagbjörtu" og svo bjó hann til El Laberinto del fauno eða Pan's Labyrinth sem gæti útlagst á íslensku sem Völundarhús fánsins.

Hún er bara æðisleg.
Tónlistin, myndatakan, leikurinn, brellurnar, ímyndunaraflið, fegurðin, hryllingurinn, ævintýrið...
og þessi fallega saga

mér leið eins og ég væri fullorðin að upplifa Bróður minn Ljónshjarta í fyrsta skiptið en með kvenkyns hetjum
mér leið eins og ég væri lítil stelpa á töfraskóm
ég grét yfir fegurðinni og tók andköf yfir hryllingnum

ég er ennþá að hugsa um hana
og ég er búin að pikka upp vögguvísuna

við sem eigum ævintýrið, við eigum alltaf lítinn glugga til að komast út um - eða krít...

3 ummæli:

  1. get ekki sagt að það komi mér á óvart, orðin vanur því ;-)

    ds

    SvaraEyða
  2. Vá hvað ég er sammála þér eftir að hafa loksins séð hana.

    SvaraEyða