27 júní 2005

tékklisti fyrir flutninga

- skrá mig fyrir símanúmerinu mínu
- flytja símanúmerið mitt
- vesenast útaf ADSL og emailinu sem ég notaði aldrei en borga 1200 kall fyrir á mánuði
- vesenast í orkuveitunni svo konið mitt hætti að fá reikninga
- borga rafmagnsreikninginn sem hvarf
- pakka stofunni
- pakka eldhúsinu
- pakka fötunum
- pakka músíkinni
- flytja lögheimili
- láta póstinn vita
- láta mastercard vita
- láta og Vodafone vita
- láta Hringiðuna vita
- láta símaskrána vita
- einhverja fleiri?
- panta flutningabíl?
- kaupa morgunmat áður en ég æli

talandi um símaskrána!
frændi minn spurði mig að því hvort ég myndi ekki hætta að vera nemi í símaskránni, núna þegar ég er búin með 8. stig og komin í söngskólapásu.
vandamálið er bara hvað ég eigi þá að vera?
dettur helst í hug:

Dagbjört ævintýrakona

hvað finnst ykkur?
haldiði að einhver myndi misskilja þetta illa? hvernig?
haldiði að síminn myndi leyfa mér þetta?
einhverjar betri hugmyndir?

5 ummæli:

  1. >tékklisti fyrir flutninga
    >- einhverja fleiri?

    já, það væri ekki vitlaust að láta tryggingarnar vita og Lánasjóðinn ef þú hefur fengið námslán...

    >talandi um símaskrána!

    ...hvað með tölvufræðingur, vinnurðu ekki við það?


    Knús,
    Dívan

    SvaraEyða
  2. æj nei!
    tölvunarfræðingur er svo ferlega "döll"

    :D

    SvaraEyða
  3. hvað með tónlistamaður eða tónlistarkona
    kv egr;)

    SvaraEyða
  4. sé ekki hvað ætti að banna það, ekki eins og það geti sært fólk :-)

    ds

    SvaraEyða
  5. Dagbjört hin fjölhæfa. Söngkona, tónskáld og tölvunarfræðingur.

    Hvernig hljómar það langt en satt

    SvaraEyða